1.2.2008 | 01:54
Vill einhver ráða 35 ára gamla ljósmóður til starfa á góðum launum
Jæja ætli það sé ekki komin tími á blogg, en um hvað á ég að skrifa í dag??? Jú kannski um laun, verða þá ekki allir skapvondir, ég fæ þá kannski einhver comment, hef saknað þeirra undanfarið. Núna er ég að setja sjálfan mig í fyrsta sætið og hætta að vera á 50% næturvöktum. Ég veit að ég þarf að gera þetta bara svo að ég geti haldið áfram í þessum breytta lífsstíl. En ó mæ god, ég var að sjá að grunnkaupið mitt lækkar um 30 þús á mánuði fyrir utan allt álag o.s.frv. Hvernig á maður að fara að þessu? Þessi launamál eru bara óþolandi. Ég var í saumaklúbb í kvöld með hjúkkum sem voru með mér í skóla, þær voru að segja mér að þar viðgengst víða að ef vantar mikið á aukavaktir (svo ekki sé talað um á nv og um helgar) þá er boðið að fá borgaðar 2 aukavaktir en vinna eina. Það mætti halda að kvennadeildin sé ekki hluti af LSH, maður er að heyra þetta á svo mörgum öðrum deildum t.d. geð- gjörgæslu- og hjartadeild svo eitthvað sé nefnt, hér er aldrei boðið neitt auka, svo eru við líka svo góðar að við vinnum bara vaktirnar jafnvel undirmannaðar og bölvum í hljóði. Í næstu kjarasamningum verðum við að hækka töluvert, og að það verði greinilegur munur á launum hjúkrunarfr og ljósmæðra, þetta er nú viðbótarnám er það ekki!!!!!
Annars gengur ágætlega í leikfiminni, finnst bara gaman. Hef aðeins dottið í sætindi sl. daga. Er að fara á þorrablót í sveitinni á morgun, ætla þá að fá mér bjór og/eða rauðvín en maður verður að halda áfram að lifa, bara að sleppa ekki hreyfingunni, ég verð bara að dansa mikið á blótinu
kv
Hrafnhildur peningalausa
Athugasemdir
Péningar, þeir er altaf til vandræða. Bara vita að þeir stopp aldrei við... sjáumst um helgina
hanna (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 12:28
Við í kjaranefnd verðum greinilega að vera harðar í næstu samningum sem verða í maí. Þegar unglingurinn á heimilinu er að fá úrborgað hátt upp í mín laun þá er eitthvað mikið að. Við verðum að standaþétt saman ljósmæður og nota það okkur til framdráttar að vera fámenn og ómissandi stétt. Bestu kveðju og láttu eki púnginn standa í þér
Árný (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 17:59
skemmtu þér vel á þorrablótinu, verst að hafa ákveðið að fara bara á þorrablót í Lindartungu þetta árið og missa af ykkur :) Þessi launamál eru endalaust vesen, og alltaf verður launabilið breiðara á milli fólks í samfélaginu.
Guðbjörg G (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 22:06
ARRRGGGGG!!!!!!!!!! verð alveg brjáluð þegar þessi launamál eru nefnd!!!!!!!!!! ARRRGGGGGGGGGGGGGGGGGG!!!!!!!!!! Þoli þetta bara alls ekki!!! Ég veit ekki til hvers maður var að bæta við sig 2 árum í viðbótarnámi (jú, náttúrlega til að geta unnið við það sem mann hefur alltaf langað til að vinna við!!) og vita svo að maður er með lægri laun en margir hjúkrunarfræðingar og það virðist einmitt vera þannig að þeir geti samið um ýmislegt við sína deildarstjóra sem ekki er hægt að gera á fæðingardeildum, hvort sem það er á LsH eða út á landi!! oh!!! ég veit að t.d hérna eru einhverjar af hjúkkunum með hærri launum en ég sem sveitarljósa og þarf að standa klár á öllu mínu og aðstæður ekki alltaf sem bestar hérna vinnulega séð!! Jæja,, ætla ekki að eyða öllu plásinu í gestabókinni þinni undir pirring yfir þessum blessuðu kjörum okkar!! Veit ekki hvað við þurfum að vera í þessum helv. heilbrigðisgeira til að fá mannsæmandi laun!!!!!!! og hana nú!! En alltaf gaman að kíkja á þig hérna Hrafnhildur mín:-) Verðum að fara að plana annan hitting!! Og haltu áfram að blogga!! Ég reyni nú alltaf að kommentera hjá þér við hvert blogg;-) Kær kveðja Inga ljósa á alltof lágum launum!!!!!!!!!
inga (IP-tala skráð) 7.2.2008 kl. 03:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.