7.11.2008 | 17:34
Klaufhalar í blokkinni minni
Það eru pöddur í blokkinni minni, í kjallaranum er allt fullt af pöddum sem heita Klaufhalar. Þetta eru meinlausar pöddur borða ma silfurskottur. En á vísindavefnum segir; Hér áður fyrr var því haldið fram að klaufhalar sæktust eftir því að skríða inn í eyru fólks meðan það svæfi, bora sig inn í heilann á því og verpa þar eggjum. Hún Sigrún frænka mín er með aðstöðu í kjallaranum, en síðan þessi padda uppgötvaðist þá hefur hún sofið upp hjá okkur, hún er að vísu veik í dag en ég vona að það sé ekki klaufhalanum að kenna.
Hér er mynd af einum slíkum, en nú á að fara að eitra fyrir þessum ófögnuði.
kv
Hrafnhildur komin heim af hælinu
Athugasemdir
OMG...þetta er ógeðslegt...ekki senda sýni hingað
Sunna Dóra Möller, 7.11.2008 kl. 22:33
Skemmtilegir gestir
Brynja (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 12:22
oj oj oj oj oj oj oj oj mig klægjar í eyranu
Árný Anna Svavarsdóttir (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 00:01
oj barasta! Fullt af svona krípum hér í Sverige en þau eru sem betur fer öll úti... ennþá allavega!
kv Hrafnhildur
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 20:39
hæ mín kæra.. hef verið löt að kíkja á bloggið og hvað þá að blogga sjálf... en hafði fullt að lesa þegar ég kíkti hjá þér núna:-) Gaman að frétta af þér:) En ekki af nýju heimilisgestunum... ohjjiojjo... er svo pödduhrædd að það er engu lagi líkt.. í fyrra sumar hringdi ég í meindýraeyðir vegna þess að 2x hafði ég fundið margfættlu inni hjá mér og hann sprakk úr hlátri.. spurði mig hvort hann ætti ekki líka að eitra fyrir húsflugunni.... þetta var sem sagt margfætla sem er eins og kóngulær.. bara úti fyrir utan hjá okkur og koma inn eins og kóngulærnar og húsflugurnar... En nóg fyrir mig. Svo var ég svo fegin í sumar að það kom enginn svona margfætla inn til mín...
En verðum að fara að hittast.. Jónína er með næsta hitting og ætlaði að hafa um miðjan nóv.. vonandi fer hún að kalla okkur saman.
kv Inga
inga (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 18:57
Er þetta algengt að íslendingar séu með klaufhala í heilanum..... hahahaha
Hanna (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.