Hitta og þetta

Undanfarna mánuði hef ég bloggað mest um eitthvað annað en það sem snýr beint að sjálfum mér, ég stofnaði þetta blogg til að upplýsa mína nánustu um lífstílsbreytingu sem hófst fyrir tæpu ári síðan.  Mest hef ég bloggað um kjarabaráttu ljósmæðra og ástandið í þjóðfélaginu þessa dagana.  En nú er best að snúa sér að segja aðeins frá mér.  Ég hef verið dugleg í haust að hreyfa mig, farið í ræktina 2-5 sinnum í viku allt eftir því hvað ég er að vinna mikið.  Mér gengur alltaf illa að koma reglu á mataræðið, ég borða svo óreglulega og svo mikið loksins þegar ég borða.  Borða t.d. alltaf lítið fyrr partinn en svo verður svona ein stór samfelld máltíð frá 5-9 á kvöldin.Blush  Það gerist að vísu ekki á hverjum degi en allt of oft.  Ég fór í Hveragerði fyrir viku síðan og vigtin er en á leiðinni niður þrátt fyrir þessa mataróreglu hjá mér Það eru samtals farin 12,6 kg síðan ég byrjaði, ég ætlaði að missa 20 kg á þessu ári en það næst sennilega ekki.

Bið að heilsa ykkur

kv

Hrafnhildur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott hjá þér, nú er bara að halda ótrauð áfram,kv. María

María G. Þórisdóttir (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 22:23

2 identicon

Til hamingju með árangrinn, góðir hlutir gerast hægt.  Áfram svo.  Já og takk fyrir síðast.

Kveðja

Brynja

Brynja á Ísó (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 22:24

3 identicon

Góður árangur Hrafnhildur! áfram áfram! þú átt minn fulla skilning á mataróreglunni, það er hægara sagt en gert að koma reglu á máltíðir og sérstaklega þegar maður vinnur óreglulegan vinnutíma með óreglulegu vinnuálagi, en allt er hægt og ég hef fulla trú á þér!

knúsilús frá Sverige

Hrafnhildur Rós (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 07:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband