11.12.2007 | 12:57
Heimferðadagur
Komið þið sæl og blessuð
Síðasti dagurinn í fyrsta hluta af þessu ársprógrammi er runninn upp, ég hitti lækninn í dag sem sagði að ég væri bara búin að vera dugleg en núna er bara að halda áfram. Ég var vigtuð og það eru farin 6.2 kg samtals og er ég stollt af því. Ég verð að halda áfram, ég tími ekki að missa niður þolið sem ég er búin að fá hérna inni. Svo kemur maður heim í "jólastressið" annars ætla ég ekki að gera eins mikið fyrir þessi jól eins og ég hef gert áður. Fyrsta mál á dagskrá er að halda upp á afmælið hans Eðvarðs, hann er að verða 7 ára 20. des, strákaafmælið verður á morgun og svo fyrir fjölskylduna um helgina. Helgin verður mjög þétt hjá mér, afmæli, jólatónleikar hjá Karlakórnum og svo að vinna síðan verð ég að koma einhverri hreyfingu inn í planið líka. Eftir helgi verður sennilega meiri tími til að sprikla.
Ég vil þakka ykkur fyrir að styðja mig, þið hafið verið dugleg að senda mér kveðju, haldið því áfram, ég ælta að halda áfram að blogga því prógrammið heldur áfram.
kv
Hrafnhildur
Athugasemdir
Þetta er bara frábær árangur. Ekkert vera að stressa sig á að gera of mikið fyrir jólin. Bara njóta jólanna og samverunnar við fjölskylduna, er það ekki númer eitt.
Við sjáumst hressar í vinnunni fljótlega og við fáum einhvern fróðleiksmola frá þér varðandi heilbrigt mataræði og svoleiðis. kveðja Árný
Árný Anna (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 14:56
Til hamingju með þetta
!
Sunna Dóra Möller, 11.12.2007 kl. 17:29
jiiii, er ekki alveg að skilja þetta.. kíki alltaf á bloggið hjá þér og svo allt í einu eru komnar þrjár færslur án þess að ég hafi kíkt á þig!!! Kannski bara það að ég hef ekkert farið í tölvuna síðustu daga.... líklega. Allir nema Gísli með steptokokka hérna á heimilinu og ég alveg að DREPAST!!! Þetta er nú meiri viðbjóðurinn!!
En flottur árangur hjá þér og gaman að lesa færslunar þínar
Heyrumst nú vonandi fljótlega!! Kveðja Inga.
inga (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 00:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.